12. mars 2004

Hmmmm...eitthvað er bilað hér..allaveganna hefur ekki skilað sér inn það sem ég hef verið að skrifa hérna síðasta árið. Jæja það er komin mars og árið er 2004. Ég er svona um það bil 2 og hálfs og margt vúið að ske hjá mér. Ég er í leikskóla, við búum á Íslandi og svona hitt og þetta. Þetta myndi væntanlega verða 14 bls ef ég á að fylla upp í þetta dagbókarskarð sem hér myndaðist.
Jólamyndirnar eru komnar inn á netið og nú er bara að vera duglegur að ná upp til dagsins í dag á næstu vikum. Svona helsta sem er búið að gerast á síðustu vikum er kanski það að ég elska að horfa á Palla sem var einn í heiminum, fór á leikritið um dýrin í Hálsaskóginum og ég elska að setjja og hlusta á það á geisladisk sem ég á....og svo miklu meira og svo margt en látum þetta duga í bili og heyrumst í næstu viku!!!

10. febrúar 2003

Komið þið sæl ! Nú er ég nýstiginn upp úr hundleiðinlegri pest, ég er sko búinn að vera mjög veikur í heila viku. En loksins er þetta búið og ég fæ að far út á róló í dag.
Annars bara allt búið að ganga sinn vanagang. Sara vinkona hennar mömmu kom í heimsókn til okkar í janúar ,hún kom alla leið frá Danmörku það var rosalega spennandi. Ég varð mjög skotinn í henni.
Svo vorum við með smá kaffiboð í gær fyrir vini okkar sem búa hér og það var lika gaman, mér finnst alltaf svo gaman að hitta fólk smá tilbreytinga fyrir mig því ég er svoldið mikið bara með mömmu og pabba. Já svo verður sko stuð næstu helgi því þá fer í í pössun hjá vinkonu mínum því mamma og pabbi ættla á Þorrablót. Ég hef heyrt þau tala mikið um að þeim hlakkar til og ættla að njóta þess að fá frí frá mér!! En é g trúi því nú varla þau hljóta að vera að spauga. Svo núna erum við bara að bíða eftir góða veðrinu þá verður sko stuð!

6. desember 2002

Jólin nálgast. Hæ hæ! Nú er ég búin að vera í Ítalíu í næstum fjóra mánuði og margt skemmtilegt búið að gerast. T.d. eru sex nýjar tennur komnar og er þá allt í allt komnar 14 tennur. Ég fer á róló næstum því á hverjum degi og í dag heimsóttum við mamma barnagæslu og þar hitti ég fullt af skemmtilegum krökkum og sá fullt af fínu dóti. Við ætlum að fara aftur á mánudaginn og vera svolítið lengur í heimsókn. Það er búið að rigna mikið þannig að pollagallinn frá Siggu ömmu og Pella afa hefur komið sér vel og er ég örugglega eini strákurinn í Milanó sem á pollagalla þar sem pollagalli fæst ekki hér. Heyrumst fljótt aftur. Benedikt.

14. október 2002

Jæja, það er orðið aldeilis langt síðan mamma og pabbi skrifuðu í dagbókina mína en eftir að ég ræddi við þau undir sex augu þá held ég að þau komi til með að standa sig betur.
Nú er ég orðin 1.árs og 11. dögum betur og komin til Milano í Ítalíu. Ég er byrjaður að labba út um allt.....meira segja nokkru áður en ég varð 1.árs. Ég bý í stórri blokk á 3.hæð í hverfi sem kallast Porta Romana. Gatan mín heitir Via Lazzaro Papi 17.

Hér er þónokkrir róluvellir í nágreninu og ég fæ að fara á hverjum degi að leika mér. Skrifa fljótt aftur, kveðja Benedikt.

3. janúar ´02
Jæja nú er ég heldur betur orðin stór . Ég er þriggja mánaða í dag mamma segir að ég sé orðin 7kg og mér finnst það ótrúlegt því ég er ekkert með neina bumbu (kannski með svoldið búttí læri). Svo er ég búin að vera svo þyrstur seinustu daga (því ég er nú að stækka) að mamma og pabbi ákváðu að leyfa mér að smakka smá maísgraut, og mér finnst það algjört æði. Jæja svona er þetta þá eru mín fyrstu jól búin og ég held bara að þetta sé búið að vera voða skemmtilegt ég er allavegana búin að kreista fram rosamikinn hlátur fyrir mömmu og pabba til að sýna þeim að mér finnist gaman. Svo langar mig til að þakka ykkur fyrir sem gáfu mér svo fína jólapakka.
.....p.s. jólamyndirnar fara alveg að koma inn á netið : )

14 nóvember 2002
Í dag er ég 6 vikna þannig að ég fór á heilsugæslustöðina í tékk. Læknirinn sagði að ég væri fullkomin, ég varð soldið grobbinn að heyra það. Ég var búin að lengjast um 3.5 cm frá því síðast og þyngjast um 700 gr. Þá er ég í dag 58 cm og 5.4 kg. Síðan gerðist svolítið annað merkilegt hjá lækninum ég fékk síðustu fjóra stafina aftaná kennitöluna mína, 3150. Seinna um daginn röltum við mamma niður í bæ og fórum í bankann. Þar hittum við skrítinn kall og mamma sagðist ætla að opna bankabók til að geta lagt inn skírnarpeningana mína, og geyma þá þangað til ég verð orðin stærri.

11 nóvember 2001
Í dag var ég skírður og fékk eins flestir vita formlega nafnið Benedikt, alveg eins og afi. Ég fékk að vígja fallegan skírnarkjól sem Hansína frænka mín prjónaði, og mitt nafn verður sett á hann. Síðan seinna meir fá önnur frændsystkyni mín að fá að skírast í honum. Það kom fullt af skemmtilegu fólki sem ég fékk að kynnast og gáfu mér fullt af flottum gjöfum. Í byrjun skírnarinnar var ég svoldið stressaður en mamma og pabbi töldu í mig kjark og þetta varð síðan ekkert mál. Þetta var góður og fallegur dagur og ég sá að mamma og pabbi voru himinlifandi.

31 október 2001
Jæja í dag er ég 4. vikna gamall og sem fyrr á slíkum hátíðisdögum kom ljósmóðirin hún Guðríður að heimsækja mig. Ég var búin að stækka um 1 og hálfan cm og þyngjast um 400 gr. Síðar um daginn fórum við til Norðfjarðar til að kaupa föt á mömmu. Við komum við á Eskifirði líka til að hitta Davíð, en það er presturinn sem ætlar að skíra mig 11. nóvember.

29 október 2001
Undur og stórmerki. Í dag fór ég í fyrsta sinn og lagðist í vagn út á svölunum og sofnaði. Þessi tilraun okkar móður minnar gekk vonum framar og við höfum ákveðið að endurtaka þetta aftur á morgun.......og hugsanlega daginn það á eftir.......og kanski líka daginn þar á eftir.

24 október 2001
Í dag er ég 3 vikna gamall og að því tilefni fór ég í minn fyrsta bíltúr með mömmu og pabba. Það var rosa stuð við keyrðum á Reyðarfjörð, Eskifjörð og Neskaupsstað. Á Eskifirði heimsóttum "Sínu" frænku og Halldór langaafa minn. Þau snúlluðu mig og kysstu alveg í kaf þannig að eftir heimsóknina var ég svo örmagna að ég steinsvaf alla leiðina heim í Egilsstaði.


18. október 2001
Í dag vöknuðum við mamma snemma til að vera tilbúin þegar ljósmóðirin mætti. Hún tók mig og gramsaði í mér og sagði að allt væri í góðum gír. Ég var búinn að þyngjast um 0,3 kg og stækka um 1/2 cm, þannig að nú er ég 4,3 kg og 53cm.

17 október 2001
Í dag er ég tveggja vikna gamall. Að því tilefni kom ljósmóðirin og ætlaði að heimsækja mig og mömmu, en við sváfum svo fast að við heyrðum ekki þegar hún bankaði. Hún ætlar að koma á morgun í staðinn og þá fæ ég að vita hvað ég hef stækkað.

10. október 2001
Rétt fyrir miðnætti datt naflastrengurinn minn af og ég er mjög stoltur. Ég fer að sofa glaður drengur.

10. október 2001

Í dag er ég vikugamall og af því tilefni kom Guðríður ljósmóður, sem tók á móti mér, og vakti mig í hádeginu. Hún krumpaði mér inn í bleyju og hristi mig til og frá og sagði að ég væri mjög myndalegur strákur, væri búinn að þyngjast vel og stækka. Nú er ég 4 kg og 52.5 sm. Að þessu loknu var ég lagður aftur í rúmið mitt og ég sofnaði. Skrifa fljótt aftur, kveðja Benedikt.


8. október 2001

Mig langaði svona rétt að hripa niður nokkur orð um hvað mér líður vel hjá mömmu og pabba. Ég sef og drekk til skiptis og pabbi keypti keypti stóra myndavél bara til að taka myndir af mér og þið komið til með að sjá þær á heimasíðunni minni.
Kveðja Benedikt.


7. október 2001

Jibbííí, ég, mamma og pabbi erum komin heim. Lilja amma var búin að baka pönnsur handa mér, en ég fékk ekki að smakka, en ykkur að segja þá var lyktin mjög góð. Hér kem ég til með að búa allaveganna fyrst um sinn, og mér líst bara vel á það.
Bless og sæl, Benedikt.


3. október 2001
Ég kom í heiminn á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Ég var tæpar 16 merkur eða , 3.95kg og 52 sm. Klukkan var rétt að slá tólf á hádegi eða tvær mínútur í.
Bæ bæ, Benedikt.