Þetta eru uppáhalds Leikföngin mín!

Palli páfagaukur sem mamma vann í tívolíinu í Gardalandi, sérstaklega handa mér. Hann er hér upp í hægra horninu. Hann er besti vinur minn og sefur hjá mér á nóttunum.

Næst er það Blái vörubíllinn minn sem Lilja amma gaf mér. Það er skemmtilegast að ,,burrrra'' með hann út á svölum og henda honum niður svo að mamma og pabbi þurfa að sækja hann.

Svo er það hesturinn minn sem er einn af dýrunum mínum. Ég hef hef rosalega gaman af dýrum og get hermt eftir þeim sumum.

Boltinn minn er næstur í röðinni. Ég fer oft með hann á róló og bíð krökkunum í fótbolta...því ég kann nefninlega alveg að sparka!

Síðast en ekki síst er það þríhjólið mitt sem mamma og pabbi gáfu mér í 1. árs afmælisgjöf. Ég næ reyndar ekki alveg niður á pedalana ennþá, en pabbi og mamma ýta mér bara út um allt á meðan ég stýri. Ég tek aksturinn mjög alvarlega og vanda mig mikið þegar ég erað keyra.