Leyndardómar Kramhússins!


Góðan daginn! Ótrúlegt en satt þá er kl. 10 að morgni en samt er niðamyrkur!


Það er laugardagur og ég og pabbi erum á leiðinn niður í bæ...


Maður rekst á margt í svona göngutúr...hér er tildæmis leikskólinn minn...Sólhlíð og ég er á rauðu deildinni!


Það eru margar götur á leiðinni og þá er eins gott að maður kunni umferðareglurnar...


Hér er takkinn sem á að ýta á...svona já!


...og svo bíður maður í smástund....(da da da da daaaaa!)...


...og "bling!" og þá má....


...labba yfir!


Þarna langt í burtu eru fjöllin...


HEY...þarna er.....hey.... : )


Þarna er risa grafa...


Hundurinn Snati...


...og þarna var kisa litla ( mjáááá).


Og áfram gakk, komdu pabbi við megum ekki vera og seinir...


Þarna er ROSA stór strompur!


Og þetta er uppáhaldskirkjan mín, Hallgrímskirkja.


Leifur "vinur minn" heppni!


Og vá hvað Skólavörðustígurinn er fallegur...



og nú erum við alveg að koma...vitiði hvert við erum að fara?!


Þarna er skiltið...sjáiði!?



KRAMHÚSIÐ...þarna er ég búinn að vera á námskeiði í allan vetur...Í dag er síðasti tíminn en á morgun er svo sýning þannig að þið fáið að sjá hvað við erum að gera þarna inni....


Á meðan ég fer á námskeið röltir pabbi aðeins lengra niður götuna og fer og fær sér kaffi meðan ég klára!


Jæja..þá er ég kominn aftur...það á að mæta aftur kl. 11 á morgun og þá mega allir koma að sjá hvað er verið að bralla í kramhúsinu:)


Let's go pabbi, let's góó!


Í bakaleiðinni er ég vanur að kíkja aðeins inn í uppáhalds krirkjuna mína.


Best að hvíla sig aðeins hérna og stilla sér upp í leiðinni... Pabbi! Taktu mynd!


Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta síðasta "fuglaber"(Reyniber) ársins...ég fann það hér í vegkantinum....pabbi borðar sko fuglaber...en hann vildi ekki borða þetta...enda soldið lint : )


Þannig var nú það sjáumst á morgun...eða...hmm semsagt næsta mynd er á morgun miðað við núna...og þá fáiði að sjá inn í Kramhúsið!


Halló!!! þetta erum við mamma...nú er kominn dagurinn á morgun...eða þannig ...þið skiljið...er það ekki.


Við erum alveg að koma....


Það er enginn mættur nema við...og kl. er 5 mín í 11...dísss hvað ég er orðinn spenntur...en þið?!


Og þarna kemur Nanna! Hún er konan sem stjórnar mínu námskeiði...og hún er með Harmonikku...jæts..!


"Ég fíl'að dilla dilla - allir fíl'að dilla!"


Meðan allir voru að koma sér niður í salinn tók ég og vinkona mín smá upphitunaræfingar og hlupum um salinn...fram og til baka...fram og til baka....fram og til baka og...þiði skiljið!


Svo áttu allir að setjast niður, þarna er hún Lilja amma, hún kom og fylgdist með mér. Síðan sungum við nokkur jólalög! Adam átti syni sjö og allt það:)!


Þetta er " jólasveinar ganga um gólf með..."


Síðan sýndi einn hópurinn leikrit...Þyrnirós nema hvað það voru þrjár Þyrnirós og þrjár álfamærar..


Þessi var í voða fínum skóm.


Allir fylgdust penntir með....


Síðan var farið í hlutverkaleik og það var gaman...


Nanna sagði "Allir að leggjast á grúfu!"


"allir að leika flóðhest í baði!"
og svo "aftur á grúfu"


"hellúúú...kemurðu oft hingað."


Og svo var komið að því að mynda hring og...


...og dilla sér við jólalög!


Og síðan var þessu ævintýri lokið og ég kom heim fullnærður eftir ærslaganginn! Þetta eru vinkonur mínar Begga Babe og Mikki (mús):)


Seinna um kvöldið


hmm hvað er þetta...kerti með tölum á!


Já góðann daginn...ég er með hérna kerti með dögum á...hvað á ég að gera...


Blása!? jæja best að blása þá....


Blááááááás


Jæja...best að henda sér í náttfötin


Mamma er eitthvað að kalla á mig?!


Jebbs alveg rétt við ætluðum að kvekja á jólaskrautinu inn í eldhúsi!


Vá þetta er bara nokkuð coool.. Það er greinilegt að jólin nálgast!
Við sjáumst mjög fljótt aftur...fariði vel með ykkur..."bumba" og "Amen"!