Hér eru upplýsingar um okkur litlu fjölskylduna!

Mamma okkar! Hún heitir Erla Kristín og á afmæli 5. janúar 1979. Hún er fædd í
Reykjavík og er algjört borgarbarn. Mamma okkar er snyrtifræðingur því henni finnst
svo gaman að gera konurnar fínar og vera fín sjálf. Áhugamál hennar erum við strákarnir hennar og pabbi labbi að sjálfsögðu.

Pabbi okkar hann heitir Vilhjálmur Warén og hann á afmæli 3. ágúst 1976. Hann er fæddur og uppalinn á Egilsstöðum. Hann er lærður rafeindarvirki og hönnuður
og er að vinna sem hönnuður hjá Dagsbrún. Hann er líka söngvari í uppáhalds hljómsveitinni okkar VAX. Pabbi er bestur í öllu og er algjör rokkari;)

Ég Benedikt stóri bróðirinn kom í heiminn 3. október 2001(Vog). Nafnið Benedikt er
komið úr latínu og þýðir "hinn blessaði". Ég fæddist á Heilsugæslunni á Egilsstöðum. Mamma var með hríðir í 34 tíma þar til ég lét ljós mitt skína. Ég var tæp 16 merkur (3.960 gr.) og 52 cm. Ég var að sjálfsögðu aðal prinsinn á heilsugæslunni því enginn annar fæddist þar á þessum merkis degi. Ég bjó á Egilsstöðum mitt fyrsta ár. Ég er skírður í höfuð á honum Pella afa mínum sem heitir Benedikt Warén. Skírnin mín var haldin á Selásnum hjá afa og ömmu þann 11. nóvember 2001. það var hann Davíð presturinn á Eskifirði sem skírði mig. Hann er líka frændi minn.Davíð prestur spilaði á gítar og söng í skírninni minni. Þegar ég var 10 mánaða flutti ég með foreldrum mínum til Italíu ( MÍLANÓ) Þar bjó ég í eitt ár og lærði nokkur orð í ítölsku. Eins og t.d. ciao og bello!! og þaðan fluttum við svo hingað í hlíðarnar. Eitt af áhugamálum mínum er fótbolti enda æfi ég fótbolta með Val sem er íþróttafélagið mitt.

Ég Gabriel mið bróðirinn kom í heiminn 28 ágúst 2006
(Meyja). Nafnið Gabriel er
hebreskt biblíunafn sem merkir " hetja guðs". Ég fæddist á landspítalanum í Reykjavík. Mamma var búin að ganga með mig í 42 vikur þegar ákvað var að gangsetja fæðinguna mína. Eftir 6 tíma hríðir og 2 tíma rembing sáu ljósmæðurnar það að ég væri fastur í mömmu minni. Þannig að við fengum hjálp hjá læknirinum við að sækja mig. Ég var svo stór og mikið fastur að ég meiddist á höfðinu, var mikið bólginn og fékk smá sár á höfuðið. Ég var ógurlega þreyttur og kvekktur með mikinn hausverk þegar ég loksins kom í heiminn. Ég fór í hitakassa í 2 tíma til að jafna mig. Ég var tæp 18 merkur (4.444 gr.) og 56 cm. Læknarnir hrósuðu mér bak og fyrir hversu duglegur og kraftmikill ég væri, því ég var fljótur að jafna mig þegar ég fékk mömmu mína. Já ég er kraftaverk!
Ég Marius yngsti bróðirinn kom í heiminn 11. febrúar 2008
(Vatnsberi). Nafnið mitt Marius er komið úr latínu sem var rómverskt ættarnafn, tengt orustuguðinum Mars. Ég fæddist á landspítalanum í Reykjavík. Mamma var búin að ganga með mig í 40 vikur og þá var ákveðið að ná í mig með keisara. Allt gekk rosalega vel og ég var rúmar 17 merkur(4385 gr.) og 53 cm.
Ég var aðeins 6 daga gamall þegar presturinn kom og skírði mig í lítilli athöfn heima í Drápuhlíðinni. Nú erum við semsagt þrír gaurar og bræður mínir eru ótrúlega góðir við mig, og ég er að sjálfsögðu góður við Þá!
|